Ferill 158. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 158 . mál.


Ed.

353. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 10/1988, um ráðstafanir í ríkisfjármálum og lánsfjármálum á árinu 1988.

(Eftir 2. umr. í Ed., 21. des.)



1. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 19. gr. laganna:
a.     2. málsl. 2. tölul. 3. mgr. orðist svo:
.      Sama á við um lán sem tekin eru erlendis vegna kaupa eða reksturs á kaupskipum og flugvélum sem notaðar eru í atvinnuskyni.
b.     Orðin „eða lengingu á lánstíma“ í 3. tölul. 3. mgr. falli niður.
c.     Við 3. mgr. bætist nýr töluliður, 4. tölul., svohljóðandi:
.      Lán sem tekin eru vegna sérstakra aðgerða stjórnvalda í þágu útflutningsgreina. Sama á við um stofnlán til fyrirtækja sem hyggjast stunda endurvinnslu úrgangsefna til útflutnings eða sinna öðrum verkefnum á sviði umhverfisverndar.

2. gr.

    Í stað orðanna „31. desember 1988“ í 4. mgr. 22. gr. laganna komi: 31. desember 1989.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.